Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 09:28 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 09:28 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 09:28 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 09:28 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 09:28 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 09:28 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Síðasta STÍ mót tímabilsins í leirdúfuskotfimi, Bikarmeistaramót STÍ fór fram samhliða SR-OPEN helgina 19.-20. ágúst. Skotfélagið Markviss átti þar tvo keppendur, þau Daníel Loga Heiðarsson og Snjólaugu M. Jónsdóttur. Keppni í kvennaflokki fór að venju fram á fyrri keppnisdegi, þar öttu kappi fimm stigahæstu skotkonur landsins.
Fyrir mótið var Helga Jóhannsdóttir SIH efst að stigum eftir mót sumarsins með 45 stig, önnur var Snjólaug með 43 stig og SR-ingarnir Dagný Hinriksdóttir og Þórey Inga Helgadóttir með 41. Eva Ósk Skaftadóttir úr SR var svo fimmta stigahæst með 39 stig.
Snjólaug hampaði bikarmeistaratitlinum
Snjólaug skaut vel í undankeppninni og náði sínu hæsta skori á móti hingað til (57/75) og var efst inn í úrslitin. Fyrstar til að detta út í úrslitum voru þær Eva og Þórey og því ljóst að baráttan um titilinn yrði milli Helgu og Snjólaugar. svo fór að Helga hafnaði í þriðja sæti og Snjólaug og Dagný voru efstar og jafnar að úrslitum loknum á 39 dúfum sem er jöfnun á íslandsmeti í úrslitum, því þurfti að grípa til bráðabana þar sem Snjólaug hafði að lokum betur. Snjólaug hampaði því bikarmeistaratitlinum í kvennaflokki og hefur því unnið alla stóru titlana hjá STÍ þetta árið.
Daníel náði í brons í B-flokki
Bikarmeistari karla varð Stefán G. Örlygsson Skotfélagi Akraness, eftir harða baráttu við íslandsmeistarann Hákon Þór Svavarsson SFS. Daníel sem er að keppa á sínu fyrsta tímabili skaut vel báða dagana,stórbætti sitt besta skor og var fimmti inn í úrslit í B-flokki SR-OPEN. Þar skaut hann mjög yfirvegað og náði að vinna sig upp um tvö sæti og hafnaði að lokum í 3. sæti í B-flokknum. Sannarlega frábær árangur hjá Daníel sem er aðeins 15 ára gamall og er eins og fyrr segir að keppa á sínu fyrsta tímabili í skotfimi. Þar er mikið efni á ferð og verður mjög áhugavert að fylgjast með honum á komandi árum.
SR 150 ára
Skotfélag Reykjavíkur sem eins og margir vita er elsta íþróttafélag landsins átti 150 ára afmæli í sumar og í tilefni af því afhenti Snjólaug M. Jónsdóttir Erni Valdimarssyni mótsstjóra gjöf frá félögum í Skotfélaginu Markviss.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |