Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 23:24 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 23:24 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 23:24 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 23:24 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 23:24 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 23:24 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Byggðaráð Húnaþings vestra lýsir yfir miklum áhyggjum af boðaðri lækkun á verði til sauðfjárbænda á komandi sláturtíð. Í bókun ráðsins frá fundi þess á mánudaginn segir að um 28% íbúa sveitarfélagsins búi á sauðfjárbýlum og ljóst að fyrirhugað tekjutap bænda hafi ekki aðeins áhrif á einstaka fjölskyldur heldur samfélagið allt. Mikið sé af afleiddum störfum vegna sauðfjárræktar í sveitarfélaginu og ef rekstrargrundvöllur sauðfjárbúa hrynji þá muni í kjölfarið draga úr annarri starfssemi s.s. fækkun starfa í sláturhúsi, minnkandi umsvif matvöruverslunar, pakkhúss og hafnarinnar, á bifreiðaverkstæðum, bókhaldsþjónustu, sem og annarri almennri þjónustu.
Haustið 2015 var vegið meðalafurðaverð til bænda um 600 kr./kg. Haustið 2016 lækkaði afurðaverð til sauðfjárbænda um ríflega 10% og var vegið meðalverð um 538 kr./kg. Haustið 2017 eru enn boðaðar verðlækkanir, allt að 35%, og gangi þær spár eftir mun afurðaverð falla niður í um 350 kr./kg. Miðað við þessar forsendur er heildarlækkun afurðaverðs í Húnaþingi vestra um 145 milljónir króna frá haustinu 2016. Sé hins vegar litið aftur til ársins 2015 er heildarlækkunin um 186 milljónir króna á tveggja ára tímabili.
Í bókun byggðarráðs segir að verði af þeim lækkunum á verði til bænda sem afurðastöðvar á svæðinu hafi boðað nú í haust sé ljóst að um gríðarlegt tekjutap sé að ræða og í raun forsendubrest í rekstri flestra sauðfjárbúa. Afar ólíklegt sé að sauðfjárbændur geti staðið við þær skuldbindingar sem stofnað hafi verið til í gegnum árin og miðuðu við aðrar forsendur en menn standi frammi fyrir í dag. Hætt sé við að bændur lendi í fátækragildru með ófyrirséðum áhrifum fyrir samfélagið allt.
Byggðarráð Húnaþings vestra skorar á ráðherra landbúnaðarmála og ráðherra byggðamála, ásamt þingmönnum kjördæmisins, að beita sér fyrir því að málefni sauðfjárbænda verði leyst með farsælum hætti.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |