Tilkynningar | 23. ágúst 2017 - kl. 09:25
Málþing í Kakalaskála

Laugardaginn 26. ágúst verður málþing í Kakalaskála í samstarfi við Háskóla Íslands. Málþingið ber yfirskriftina Kynjaveröld í Kakalaskála og þar verða flutt erindi sem tengjast konum frá öllum tímum og sérstaklega í Skagafirði. Dagskráin hefst klukkan 14 og stendur til 16:30. Aðgangur er ókeypis.

Fjallað verður um ýmis málefni, skilgreiningar á kynferði, hannyrðir kvenna á Hólum og í Gröf, skáldkonuna Elínborgu Lárusdóttur og ferðalög kvenna sem segir frá í Sturlungu. Það er Guðrún Ingólfsdóttir sem stjórnar málþinginu og eru allir velkomnir í Kakalaskála.

Dagskrá:

14:00 Þórunn Sigurðardóttir rannsóknarlektor: Maður og kvinna er höfuð og hönd. Skilgreiningar á kynferði í 17. aldar textum

14:30 Margrét Eggertsdóttir rannsóknarprófessor: Sálmahandrit og hannyrðir kvenna á Hólum og í Gröf

15:00 Kaffihlé

15:30 Dagný Kristjánsdóttir prófessor: Hvíti dauðinn og Elínborg Lárusdóttir

16:00 Bergljót S. Kristjánsdóttir: Utan vil eg: Um ferðir þriggja kvenna í Sturlungu

 

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga