Fréttir | 23. ágúst 2017 - kl. 13:20
Stóðsmölun í Laxárdal og stóðréttir í Skrapatungurétt

Helgina 15.-17. september fer fram hin árlega stóðsmölun á Laxárdal og stóðréttir í Skrapatungurétt. Fjallkóngur verður Skarphéðinn Einarsson, skólastjóri Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga, og sér hann um leiðsögn ferðamanna í stóðsmöluninni. Allir geta tekið þátt í reiðinni hvort sem fólk kemur með sinn eigin hest eða leigir af heimamönnum og tilvalið er að mæta í réttirnar og taka þátt í dagskránni þar.

Stóðsmölunin hefst laugardaginn 16. september og verður lagt af stað klukkan 9:30 frá Strjúgsstöðum í Langadal og frá Gautsdal. Áning verður í Kirkjuskarði um hádegi og verður þar hægt að kaupa kjötsúpu og fleiri veitingar. Klukkan 14:00 verður riðið af stað frá Kirkjuskarði til Skrapatunguréttar þar sem dagskrá hefst klukkan 16:00. Þar verður söngur, gleði og gaman, uppboð á hrossum og baráttan um Skrapatunguréttarbikarinn. Stóðréttarball með Greifunum verður í Félagsheimilinu á Blönduósi klukkan 23:00 og er aldurstakmark 18 ár. Stóðréttirnar hefjast svo í Skrapatungurétt klukkan 11:00 sunnudagsmorguninn 17. september.

Viðburðurinn er með breyttu sniði þetta árið þar sem eingöngu er smalað hrossum sem þýðir að fyrr verður komið í Skrapatungurétt. Nánar má kynna sér viðburðinn á Facebook síðu hans.

Dagskrá:

Föstudagurinn 15. september:

17:00 Gjaldfrjáls nátthagi fyrir hross að Strjúgsstöðum, norðan afleggjara, við veginn.
17:30 – 21.30 Handverksmarkaður í Félagsheimilinu á Blönduósi.
20:00 Súpukvöld í Félagsheimilinu á Blönduósi. Verð kr. 1.500,- innifalinn happdrættismiði. Pantanir þurfa að berast á hafagaman15@gmail.com fyrir miðvikudaginn 13.september.

Laugardagur 16. september:

09:30 Lagt af stað frá Strjúgsstöðum í Langadal.
09:30 Lagt af stað frá Gautsdal.
12:00 Áning í Kirkjuskarði. Kjötsúpa og fleiri veitingar til sölu – ATH enginn posi á staðnum.
14.00 Riðið af stað frá Kirkjuskarði.
16.00 Dagskrá hefst í Skrapatungurétt
- Uppboð á hrossum
- Baráttan um Skrapatunguréttarbikarinn
- Söngur- gleði og gaman
- Næturhólf fyrir hross í boði fyrir þá sem vilja
23:00 Stóðréttarball með Greifunum í Félagsheimilinu á Blönduósi. Opinn bar – Aldurstakmark 18 ár.

Sunnudagur 17. september

11:00 Stóðréttir í Skrapatungurétt. Veitingasala í réttarskúr á meðan réttarstörfum stendur.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga