Tilkynningar | 24. ágúst 2017 - kl. 09:22
Listsýning í Bílskúrs Gallerí
Frá Textílsetri Íslands

Listsýning þeirra listamanna sem dvalið hafa í listamiðstöð Textílsetursins í ágústmánuði verður haldin á morgun, föstudag á milli klukkan 15:00-18:00. Margt verður þar spennandi að sjá og upplifa. Sýningin verður haldin í Bílskúrs Gallerí.

Listamennirnir dvelja hér í mánuð eða meira og koma að venju alls staðar að úr heiminum eins og t.d. frá Kanada, Bandaríkjunum, Þýskalandi og Hollandi. Lengst að kemur ein frá Ástralíu. Þær hafa unnið mikið í vef, útsaum og ýmsu spennandi sem vert er að sjá.

 Verið velkomin,
Fh. Listamannanna
Jóhanna E. Pálmadóttir

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga