Tilkynningar | 03. september 2017 - kl. 19:30
Árleg haustsala aðildarfélaga Krabbameinsfélagsins 2017
Frá Krabbameinsfélagi Austur-Húnavatnssýslu

Árleg haustsala aðildarfélaga Krabbameinsfélagsins stendur yfir 31. ágúst– 5. september 2017.
Í ár selja aðildarfélögin penna og bílaþvottapoka með merki félagsins.

Allur ágóði rennur til aðildarfélaga Krabbameinsfélags Íslands en það eru svæðisbundin krabbameinsfélög og stuðningshópar sem stofnaðir hafa verið til að sinna fræðslu og þjónustu við þá sem hafa fengið krabbamein.

Félögin takast á við veigamikil verkefni í heimabyggð sinni, einkum á sviði fræðslu og stuðnings við sjúklinga og fjölskyldna þeirra. Stuðningshóparnir hafa unnið mikið og óeigingjarnt starf í þágu krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra og hefur það haft ómetanlega þýðingu. Sölunni er ætlað að styðja við þessa starfsþætti.

Takið vel á móti sölufólki okkar!

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga