Fréttir | 17. október 2017 - kl. 10:39
Ráðstefna um framtíð landbúnaðar á Norðurlandi vestra

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra heldur ráðstefnu á föstudaginn um framtíð landbúnaðar á Norðurlandi vestra. Ráðstefnan fer fram í Félagsheimilinu á Hvammstanga og stendur frá klukkan 13 til 17. Ráðstefnustjóri er Gísli Einarsson. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, landbúnaðarráðherra, mun ávarpa ráðstefnugesti. Ráðstefnan er öllum opin og fer skráning fram á netfanginu ssnv@ssnv.is.

Ráðstefna um framtíð landbúnaðar á Norðurlandi vestra föstudaginn 20. október 2017:

13:00 Setning - Stefán Vagn Stefánsson, formaður SSNV.

13:10 Ávarp landbúnaðarráðherra – Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

13:50 Fleiri stoðir – Haraldur Benediktsson 1. þingmaður Norðvesturkjördæmis.

14:10 Hvernig er hægt að lifa af yndisarði? – Sigríður Ólafsdóttir bóndi.

14:30 Vörusmiðja Biopol, tækifæri til nýsköpunar – Þórhildur María Jónsdóttir verkefnastjóri.

14:40 HLÉ

15:00 Skógrækt sem þáttur í fjölbreyttari landbúnaði – Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri.

15:20 Getur ferðaþjónustan stutt við hinar dreifðu byggðir á Norðurlandi vestra? – Stefanía Hjördís Leifsdóttir bóndi.

15:40 Nýting landgæða – Eggert Kjartansson raforkubóndi.

16:00 Atvinna og búseta í dreifbýli – Jóhannes G. Þorsteinsson tölvuleikjahönnuður.

16:15 Samantekt og umræður.

17:00 Ráðstefnuslit.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga