Fréttir | 17. október 2017 - kl. 14:31
Sálmar og Jazz! Kórar Blönduóss-, Hvammstanga og Hólanesskirkju
Tónleikar í Blönduósskirkju

Kórar Blönduóss-, Hvammstanga og Hólaneskirkju Skagaströnd taka höndum saman og syngja saman fjölbreytta og skemmtilega sálma með jazz-ívafi sunnudagskvöldið 22. október klukkan 20:00 í Blönduósskirkju, undir stjórn Eyþórs, Pálínu og Hugrúnar Sifjar organista kirknanna.

Þeim til aðstoðar verða þeir Þór Breiðfjörð einsöngur, Jón Rafnsson kontrabassi og Vignir Þór Stefánsson píanó. Enginn aðgangseyrir. Vonumst til að sem flestir sjái sér fært að eiga með okkur skemmtilega kvöldstund.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga