Ljósm: hunathing.is
Ljósm: hunathing.is
Fréttir | 24. nóvember 2017 - kl. 15:03
Ljósin tendruð á jólatrénu á Hvammstanga ATH breytt dagsettning

Ljósin á jólatrénu við félagsheimilið á Hvammstanga verða tendruð á morgun, laugardaginn 25. nóvember klukkan 17:00. Elínborg Sigurgeirsdóttir mun leika létt jólalög, krakkar úr grunnskólanum syngja og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir mun flytja ávarp. Jólasveinar koma í heimsókn og færa börnum góðgæti. Boðið verður upp á heitt kakó og piparkökur. Allir eru hvattir til að koma. Jólamarkaðurinn hefst kl 11:00 og stendur til kl. 17:00

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga