Fréttir | 24. nóvember 2017 - kl. 15:52
Á morgun, laugardaginn 25. nóvember, verður opið hús í listamiðstöðinni Nesi á Skagaströnd frá klukkan 16-18. Þar muni listamenn nóvember mánaðar sýna verk sín. Milli klukkan 16:30 og 17:15 fer fram samspil leiklistar og persneskrar fiðlu, kvikmyndasýning, upplestur úr skáldsögu og kynning á rannsókn á bæjarskipulagi Skagastrandar. Klukkan 17:30 verður tónlist, ljóð og sjónlistasýning í kaffistofunni Einbúastíg 2.
Listamennirnir eru:
Alexia Brehas, Laura-Bethia, Campell, Daryl Farmer, Kyle Macdonald, Amanda Marsh, Aaron Palabyab, Tanya Plazna, Jason Richmond, Agnieszka Rowinska, Emilie Slater og Dao Strom.