Tilkynningar | 25. nóvember 2017 - kl. 10:10
Minnum á Jólasjóðinn
Frá stjórn Jólasjóðs A-Hún.

Nú fer að líða að jólum og vill Jólasjóðurinn minn á sig.

Sjóðurinn hefur fengið styrki frá  félagasamtökum, sveitarfélögum og einstaklingum til að aðstoða fjölskyldur og einstaklinga á svæðinu, sem minna mega sín.

Þörf fyrir aðstoð á svæðinu hefur aukist frá ári til árs,  hefur Félagsþjónustan  fært einstaklingum og fjölskyldum inneignarkort sem jólasjóðurinn fjármagnar með styrkjum frá ykkur.

Vill sjóðurinn koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem hafa styrkt sjóðinn í gegnum árin.

Bent er á reikningsnúmer Jólasjóðsins:  0307-13-110187, kt. 651114-0470.

Stjórnin.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga