Tilkynningar | 29. nóvember 2017 - kl. 14:06
Það eru að koma jól
Frá kvenfélaginu Heklu

Jólabasar kvenfélagsins Heklu verður í Skagabúð sunnudaginn 3. desember frá klukkan 14-17. Þar verður ýmislegt til sölu, s.s jólakort og pappír, gott úrval af heimaunni vöru og handverki.

Heitt súkkulaði, piparkökur, rósettur og muffins selt á 1.000 krónur fyrir eldri en 12 ára, 500 krónur fyrir 7-12 ára og frítt fyrir 6 ára og yngri.

Hægt er að panta söluborð hjá Árnýju í síma 4522745. Stórt borð kostar 2.000 krónur og lítið 1.500 krónur.

Verið hjartanlega velkomin að eiga með okkur notalega aðventustund.

Ath við tökum ekki greiðslukort  

Kvenfélagið Hekla

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga