Fréttir | 12. desember 2017 - kl. 13:32
Íþróttamaður ársins 2017 hjá USAH
Frá stjórn USAH

Ungmennasamband Austur-Húnvetninga óskar eftir tilnefningum frá íbúum Austur-Húnavatnssýslu til kjörs á Íþróttamanni ársins 2017 hjá USAH. Um er að ræða tilnefningar á íþróttafólki sem hefur náð góðum árangri í sinni keppnisgrein á árinu 2017. Rétt til tilnefningar eiga þeir sem eru 16 ára á árinu og eldri og keppa á yfirstandandi eða nýloknu keppnistímabili fyrir hönd USAH eða félaga innan USAH.

Tilnefningar skulu berast stjórn USAH fyrir 20. desember næstkomandi og skal þeim skilað ásamt yfirliti yfir árangur viðkomandi einstaklings á netfangið usah540@simnet.is.

Stjórn USAH

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga