Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 10:41 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 10:41 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 10:41 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 10:41 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 10:41 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 10:41 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Eins og margir vita er í bígerð að gera Hollywood-mynd byggða á bókinni Burial Rites eða Náðarstund eftir ástralska höfundinn Hannah Kent. Hún heillaðist af sögu Agnesar Magnúsdóttur sem tekin var af lífi fyrir að myrða Natan Ketilsson, bónda á Illugastöðum og Pétur Jónsson vinnumann árið 1828. Bókin var gefin út árið 2013 og hefur farið sigurför um heiminn og verið gefin út á meira en tuttugu tungumálum. Nú herma fregnir að hæst launaða leikkona heims, Jennifer Lawrence, muni leika Agnesi í myndinni. Sagt er frá þessu á vef bandaríska tímaritsins Variety.
Lawrence er ein skærasta stjarna Hollywood um þessar mundir en hún hlaut m.a. Óskarsverlaun fyrir besta leik í aðalhlutverki árið 2012. Hún hefur verið tilnefnd til þrennra Óskarsverðlauna til viðbótar og hlotið fjölmörg verðlaun og tilnefningar á hinum ýmsu kvikmyndahátíðum. Líklega er hún þekktust fyrir leik sinn í þríleiknum um Hungurleikana.
Burial Rites kom út árið 2013 eins og áður sagði en höfundur hennar Hannah Kent var 17 ára skiptinemi í Skagafirði þegar hún heyrði fryst söguna um Agnesi. Hún lagðist í mikla rannsóknarvinnu á lífi Agnesar sem endaði svo í umræddri bók. Bókin kom út í íslenskri þýðingu Jóns St. Kristjánssonar haustið 2014.
Ríkisútvarpið segir frá því í dag að tökulið kvikmyndarinnar hafi sótt Húnaþing vestra heim nokkrum sinnum til þess að kynna sér aðstæður fyrir mögulegar tökur fyrir myndina. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafa þau verið í Vatnsdalnum og Vatnsnesinu fyrst og fremst, en sagan gerist þar. Teymið furðar sig á því hversu lítið hafi breyst í umhverfinu síðan 1830, þegar sagan gerðist.
Fréttin hefur verið uppfærð
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |