Frá fundinum. Ljósm: hunathing.is
Frá fundinum. Ljósm: hunathing.is
Fréttir | 13. desember 2017 - kl. 11:13
Gagnlegur fundur um skólamál

Í lok síðasta mánaðar var haldinn vinnufundur íbúa í Húnaþingi vestra um framtíðarskipan skólamála í sveitarfélaginu til næstu 30 ára. Fundurinn skiptist í kynningu, tvær umræðulotur, matarhlé og samantekt.  Kynnt var rýnivinna fjölmenns hóps allra hagsmunaaðila skólasamfélagsins sem unnin hefur verið frá haustbyrjun. Sagt er frá þessu á vef Húnaþings vestra og þar kemur fram að fundurinn hafi verið vel sóttur og afar gagnlegur.

Á fundinum voru hugmyndir um framtíðarskipan skólamála lagðar fyrir umræðuhópa á sex borðum þar sem annars vegar var kallað eftir sýn íbúa á innra skipulagi framtíðarskólahúsnæðis og hins vegar hvort og hvaða aðrar stofnanir gætu átt samleið í húsnæði skólans. Skýrar hugmyndir komu fram um flest atriði sem hafa ber í huga við viðbyggingu við skólann, í hvaða forgangsröð á að framkvæma og hvaða stofnanir koma til greina með starfsemi í húsnæði skólans.

Niðurstöður hafa verið dregnar saman og verða kynntar sveitarstjórn og fara svo í almenna kynningu í kjölfarið þar sem íbúum gefst aftur tækifæri að hafa áhrif á undirbúning viðbyggingar við grunnskólann.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga