Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 20. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 13:56 0 0°C
Laxárdalsh. 13:56 0 0°C
Vatnsskarð 13:56 0 0°C
Þverárfjall 13:56 0 0°C
Kjalarnes 13:56 0 0°C
Hafnarfjall 13:56 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
Fréttir | 18. desember 2017 - kl. 10:40
Fjárhagsáætlun Húnaþings vestra 2018 samþykkt

Fjárhagsáætlun Húnaþings vestra fyrir árið 2018 var samþykkt á fundi sveitarstjórnar í síðustu viku og gerir hún ráð fyrir 12,8 milljón króna tekjuafgangi. Áætlað er að fráveita, hitaveita og vatnsveita skili rekstarafgangi en önnur B-hluta fyrirtæki séu rekin með halla. Í bókun sveitarstjórnar kemur fram að við gerð áætlunarinnar hafi verið lögð áhersla á hagkvæmni í rekstri og skynsemi í framkvæmdum, líkt og undanfarin ár og sem finn hafi samvinna á milli meirihluta og minnihluta um áherslur verið afar góð.

Helstu niðurstöður fjárhagsáætlunar Húnaþings vestra fyrir árið 2018 eru:

  • Áætlunin er lögð fram með um 12,8 m.kr. tekjuafgangi.
  • Tekjur samstæðunnar eru áætlaðar 1.404 m.kr. en gjöld 1.371,6 m.kr. án fjármagnsliða.
  • Fjármagnsliðir eru áætlaðir 19,3 m.kr.
  • Veltufé frá rekstri til greiðslu afborgana lána og til fjárfestinga er 84 m.kr.
  • Hlutfall veltufjár frá rekstri er áætlað 6%.
  • Áætlað er að afborgun langtímalána 50 m.kr. á árinu 2018.
  • Handbært fé í árslok 2018 er áætlað 14,7 m.kr. sem er lækkun um 31,1 m.kr. frá ársbyrjun.
  • Gert er ráð fyrir hækkun á liðnum eigið fé um 12,8 m.kr. frá afkomuspá ársins 2017
  • Gert er ráð fyrir hækkun skulda og skuldbindinga um 24,5 m.kr. frá afkomuspá ársins 2017.
  • Gert er ráð fyrir eignfærðri fjárfestingu á árinu 2018 upp á 153 m.kr.
  • Skuldahlutfall er áætlað 59,5% sem er svipað hlutfall og í ár samkvæmt útkomuspá.

Á  liðnum  árum  hefur  sveitarstjórn  Húnaþings  vestra  almennt  hækkað  gjaldskrár  í  samræmi  við  verðlagsbreytingar og er sami háttur hafður á fyrir árið 2018.  Vistunargjald  leikskóla  hefur þó  ekki  verið hækkað  frá  árinu  2011. Álagningaprósenta A-gjalds fasteignaskatts er lækkuð á ný í áætlun ársins 2018 þar sem fasteignamat í sveitarfélaginu hækkaði nokkuð á milli ára.  Greiðslur fasteignaeigenda í Húnaþingi vestra eiga því almennt að vera svipaðar árið 2018 og þær voru 2017.

Á  árinu  2018  er áfram gert  ráð  fyrir  talsverðum  fjárfestingum  og  framkvæmdum  á  vegum  sveitarfélagsins líkt og verið hefur undanfarin ár. Umfangsmiklum hitaveituframkvæmdum í dreifbýli sem staðið hafa frá árinu 2015 er nú lokið í bili. Á árinu 2018 er gert ráð fyrir undirbúningi næstu skrefa í stækkun hitaveitunnar með borun eftir heitu vatni á Reykjatanga og rannsóknum á hvort vænlegt er að bora á Borðeyri.  Verði niðurstöður góðar verður hitaveituframkvæmdum í dreifbýli haldið áfram og gert ráð fyrir þeim í áætlunum áranna 2019, 2020 og 2021.  Þá er fyrirhugað að fara í viðamiklar viðhaldsframkvæmdir við hitaveitu á Hvammstanga á næstu árum enda lagnir þar sumar að nálgast hálfrar aldar afmælið.

Stærstu  fjárfestingarverkefni  ársins  2018  eru áframhaldandi vinna við stækkun íþróttamiðstöðvar, gatnagerð, undirbúningur fyrir áframhaldandi framkvæmdir við hitaveitu eins og áður kom fram sem og lagning ljósleiðara. Einnig er gert ráð fyrir að unnið verði að hönnun viðbyggingar við Grunnskóla Húnaþings vestra á árinu 2018 sem og áframhaldandi vinnu við hönnun og uppbyggingu leik- og frístundasvæðis við skólann.

Nánar má lesa um fjárhagsáætlun Húnaþings vestra hér.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið