Rafbókasafnið
Rafbókasafnið
Fréttir | 18. desember 2017 - kl. 18:47
Rafbókasafnið komið í Húnaþing vestra

Bókasafn Húnaþings vestra hefur hafið útlán á raf- og hljóðbókum í samvinnu við Landskerfi bókasafna. Með þessari nýjung geta notendur bókasafnsins nálgast fjölda titla hljóð- og rafbóka á auðveldari hátt en hingað til. Fyrst um sinn verða bækurnar aðallega á ensku en vonast er til þess að íslenskir titlar bætist fljótlega við.

Það eina sem þarf til að nálgast efni af Rafbókasafninu er að vera skráður notandi á bókasafninu og fá notendanúmer og lykilorð til að nota á heimasíðu safnsins. Hægt verður að nálgast efnið í flestum tækjum svo sem í vafra í tölvum, spjaldtölvum og snjallsímum. Auk þess er efnið jafnframt aðgengilegt í gegnum sérstakt app, OverDrive sem finna má í App Store og Play Store.   

Þjónustan er veitt í gegnum OverDrive rafbókaveituna og er gjaldfrjáls fyrir skráða notendur á bókasafni Húnaþings vestra. Slóðin að Rafbókasafninu er rafbokasafnid.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga