Fréttir | 14. janúar 2018 - kl. 10:32
Val á manni ársins 2017 í Austur-Húnavatnssýslu
Allir lesendur Húnahornsins eru hvattir til að taka þátt í valinu

Líkt og undanfarin 12 ár ætlar Húnahornið að bjóða lesendum sínum að velja mann ársins í Austur-Húnavatnssýslu. Við biðlum til lesenda að senda inn tilnefningu í gegnum þar til gerðan rafrænan atkvæðaseðil. Hver og einn getur sent inn eina tilnefningu og er jafnframt óskað eftir ástæðu tilnefningarinnar. Maður ársins í Austur-Húnavatnssýslu getur verið einn einstaklingur eða hópur manna.

Allir lesendur Húnahornsins eru hvattir til að taka þátt í valinu - Smelltu hér.

Lesendur Húnahornsins völdu Skarphéðinn Húnfjörð Einarsson, skólastjóra Tónlistarskóla Austur-Húnavatnssýslu, sem mann ársins í Austur-Húnavatnssýslu árið 2016. Skarphéðinn hefur í meira en aldarfjórðung skipað stóran sess í tónlistar- og skemmtanalífi Austur-Húnvetninga og er það mikil gæfa fyrir héraðið að eiga hann að.

Þetta er í 13. sinn sem Húnahornið stendur fyrir vali á manni ársins í Austur-Húnavatnssýslu.

Valið stendur til miðnættis 28. janúar næstkomandi og verða úrslit kynnt á þorrablóti á Blönduósi, laugardaginn 3. febrúar.

Allir lesendur Húnahornsins eru hvattir til að taka þátt í valinu - Smelltu hér.

Menn ársins í Austur-Húnavatnssýslu síðustu ár eru þessir:

2016: Skarphéðinn Húnfjörð Einarsson
2015: Róbert Daníel Jónsson
2014: Brynhildur Erla Jakobsdóttir
2013: Elín Ósk Gísladóttir
2012: Kári Kárason og Pétur Arnar Kárason
2011: Einar Óli Fossdal
2010: Bóthildur Halldórsdóttir.
2009: Bóthildur Halldórsdóttir.
2008: Lárus Ægir Guðmundsson.
2007: Rúnar Þór Njálsson.
2006: Lárus B. Jónsson.
2005: Lárus B. Jónsson.

RAFRÆNN ATKVÆÐASEÐILL

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga