Fréttir | 15. janúar 2018 - kl. 07:35
Bændafundur á Blönduósi

Forystufólk Bændasamtaka Íslands heldur til fundar við bændur nú í upphafi árs. Alls eru skipulagðir 18 almennir bændafundir víðs vegar um landið dagana 16.-18. janúar. Einn slíkur verður haldinn í Félagsheimilinu á Blönduósi í hádeginu, miðvikudaginn 17. janúar, og hefst hann klukkan 12:00. Fulltrúar Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins verða með í för og ræða um framtíðarsýn og þróun ráðgjafarþjónustu.

Að sögn Sindra Sigurgeirssonar, formanns BÍ, er af mörgu að taka. Rætt verður um stöðuna í landbúnaðinum og farið vítt yfir sviðið. Árið 2017 var fyrsta ár nýrra búvörusamninga og fyrir liggur fyrsta endurskoðun þeirra. Þá er nýlegur dómur EFTA-dómstólsins um innflutning á hráu kjöti og eggjum bændum umhugsunarefni og ljóst að því máli er hvergi nærri lokið. Sindri segir að viðfangsefni næstu missera verði áfram þau að bæta hag bænda og móta framtíðarsýn fyrir atvinnugreinina. Hann segir mikilvægt fyrir bændastéttina að standa saman og að rödd hennar hljómi sem víðast og sterkast. „Við verðum að gæta hagsmuna landbúnaðarins og þess vegna rekum við öflug Bændasamtök,“ segir Sindri í bréfi til félagsmanna sem birt er í auglýsingu í nýju Bændablaði.

Allir núverandi og verðandi félagsmenn í Bændasamtökum Íslands eru velkomnir á fundina.

Sjá nánar um fundina 18 hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga