Fréttir | 19. janúar 2018 - kl. 15:58
Þorrinn byrjar

Ritstjórn Húnahornsins óskar íslenskum karlmönnum innilega til hamingju með bóndadaginn. Nú bregður svo við að ekkert þorrablót verður haldið á Blönduósi fyrstu helgina í þorra. Síðastliðin 60 ár hefur kvenfélagið Vaka séð um þorrablót fyrir Blönduósinga og hafa þau oftast, hin seinni ár í það minnsta, verið haldin fyrsta laugardag í þorra. En allt hefur sinn tíma og þær kvenfélagskonur ákváðu í fyrra að nú væri komið nóg. Nýir aðilar taka nú við keflinu og halda Blöndublót laugardaginn 3. febrúar næstkomandi.  

Blöndublót verður með svipuðu sniði og þorrablót Vökukvenna undanfarna áratugi. Húsið opnar klukkan 19:00 og borðhald hefst stundvíslega hálftíma síðar. Skemmtinefnd hefur verið að störfum og ber hún ábyrgð á skemmtiatriðum kvöldsins en að vanda verður annáll fyrir árið 2017. Stóra spurningin er hverjir verða þess heiðurs aðnjótandi að verða teknir fyrir að þessu sinni.

Veitingar verða í höndum Hafa gaman ehf. og hljómsveitin Festival sé um undirspil í fjöldasöng ásamt því að halda uppi fjörinu fram eftir nóttu. Aldurstakmark er 18 ár eða árgangur 2000 en 16-17 ára eru velkomin í fylgd með foreldri/forráðamanns. Barinn verður opinn og því verður ekki leyft að koma með áfengi inn í húsið.

Miðaverð er kr. 7.000.

Miðapantanir í síma 6634789 Kristín eða á netfangið hafagaman15@gmail.com pantanir þurfa að berast fyrir sunnudaginn 28. janúar. Miðarnir verða svo afhendir gegn greiðslu fimmtudaginn 1. febrúar klukkan 16:00-17:30.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga