Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 02:39 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 02:39 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 02:39 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 02:39 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 02:39 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 02:39 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Nýr líkamsræktarsalur var opnaður í íþróttahúsinu á Skagaströnd 17. janúar síðastliðinn. Salurinn er á miðhæð þar sem kennslustofur hafa verið undanfarin ár. Tækin í salnum, 18 talsins, eru fengin frá World Class og eiga þau að gefa möguleika á þjálfun flestra vöðva líkamans. Einnig eru þar þrjú öflug hlaupabretti. Á vef Skagastrandar segir að góð aðsókn hafi verið við opnunina og mikil ánægja með aðstöðuna og tækin og síðast en ekki síst þau tækifæri sem opnast með breytingunum.
Þegar öll almenn kennsla var flutt úr íþróttahúsinu og yfir í grunnskólann á síðasta ári opnaðist möguleiki til að nýta rýmið fyrir líkamsrækt. Breytingin er mikil bylting í aðstöðu fyrir líkamsræktina sem undanfarin 20 ár hefur verið í kjallara íþróttahússins í þröngu rými og með misjöfnum tækjabúnaði. Í kjallaranum verður reyndar áfram lyftingabúnaður, lóð og þess háttar þjálfunaraðstaða.
Við opnunina í síðustu viku voru tækin kynnt og Ólafur Jóhannesson stöðvarstjóra hjá World Class kenndi bæði starfsfólki og gestum hvernig best er að nota þau. Einnig kynnti Þórey Fjóla Aradóttir hvaða þjónustu hún getur boðið sem einkaþjálfari.
Íþróttahúsið var tekið í notkun fyrir réttum 20 árum því það var formlega opnað 15 mars 1998. Í því er 16x32 metra parketlagður salur þar sem hægt er að stunda ýmsar íþróttir. Auk líkamsræktaraðstöðunnar er á efstu hæð ágætur salur fyrir júdó, karate og jóga. Í tilefni þessara tímamóta og breytinga lagði Ungmennafélagið Fram til dýnur á allt gólf salarins.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |