Fréttir | 15. febrúar 2018 - kl. 14:48
Nýtt gallerí á Skagaströnd

Í sölum Salthússins á Skagaströnd hafa nú verið skipulagðar myndlistarsýningar á þessu ári og hefur þetta nýja sýningarrými fengið nafnið Salthús gallerí. Fyrsta sýning ársins verður opnuð í dag, fimmtudaginn 15. febrúar klukkan 17-19. Mia Hochrein myndlistarkona sýnir þar myndaröðina "Lost Place," sem tekin var í Salthúsinu sumarið 2016.

Um verkin sín segir Mia: "Gamlar byggingar sem standa tómar heilla mig, því þær segja sögu íbúanna og bakgrunn þeirra. Fyrir mér viðist viðfangsefnið þ.e. byggingin lifna við þegar ég geng í gengum hana og ég finn alltaf falda fjársjóði eða fegurð þar sem aðrir sjá aðeins ljótleika eða nytsemi. Í leit minni sækist ég eftir þessari ró og földum bakgrunni sem slíkar byggingar bera með sér. Þegar ég hef fangað það augnablik, yfirfæri ég það í myndverk og þar með tilfinninguna samfara því að horfa og þannig eignast viðfangsefnið nýtt líf eða tilvist."

Sjá nánar á http://salthus.is/is/heim/galleri/  

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga