Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Miðvikudagur, 17. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 00:21 0 0°C
Laxárdalsh. 00:21 0 0°C
Vatnsskarð 00:21 0 0°C
Þverárfjall 00:21 0 0°C
Kjalarnes 00:21 0 0°C
Hafnarfjall 00:21 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Gamli bærinn. Ljósm: blonduos.is.
Gamli bærinn. Ljósm: blonduos.is.
Fréttir | 17. febrúar 2018 - kl. 12:42
Tillaga um verndarsvæði í byggð

Sveitarstjórn Blönduósbæjar ætlar að leggja fram tillögu til mennta- og menningarmálaráðherra um verndarsvæði í byggð innan þéttbýlisins á Blönduósi. Svæðið er 17,5 hektarar og tekur til gamla bæjarkjarnans aðliggjandi svæðis. Tillagan fjallar um verndargildi byggðarinnar sem spannar um 140 ár. Tillagan ásamt greinargerð og uppdráttum liggur frammi á skrifstofu Blönduósbæjar, Hnjúkabyggð 33 frá 21. febrúar til og með 4. apríl næstkomandi. Öllum gefst kostur á að gera athugasemdir við tillöguna fram að þeim tíma.

Á vef Blönduósbæjar kemur fram að svæðið taki annars vegar til gamla bæjarkjarnans á Blönduósi og hins vegar til aðliggjandi svæðis sjálfsþurftarbyggðar á árbakkanum og í Klifamýri. Að vestanverðu miðast útmörk svæðisins við fjörumál og fylgja síðan sandinum við árósinn og árbakkanum að norðanverðu allt austur að vestari lóðarmörkum fjölbýlishússins við Hnjúkabyggð 27. Þar sveigja útmörkin til suðurs að götunni Hnjúkabyggð og liggja með henni að mótum Þingbrautar, sem þau fylgja síðan í suður- og vesturátt að rótum malarhjallans, þ.e. Miðholts- og Neðribrekku, er marka útmörk verndarsvæðisins að sunnanverðu allt til sjávar.

Í tillögunni segir m.a.: „Sögu svæðisins má í grófum dráttum má skipta í tvö ámóta löng tímabil, þ.e. annars vegar tíma uppbyggingar á árabilinu 1876-1950 og hins vegar kyrrstöðu- og hnignunarskeið, sem þá tók við og enn varir. Þrátt fyrir stöðnun og áföll á liðnum áratugum hefur svæðið haldið sínum sjarma. Andrúmsloft fyrri tíma grúfir yfir og skapar afar sérstaka og eftirsóknarverða stemmningu á svæðinu. Tilfinningin um sjálfbæra bæjarkjarnann sem iðaði af mannlífi og naut stuðnings af sveitinni innan við og sjónum fyrir utan. Áningarstaðarins þar sem ferðafólk gat hvílt lúin bein. Hér eru einstök verðmæti sem mikilvægt er að halda vel utan um og byggja upp af fagmennsku og virðingu. Með tillögu um verndarsvæði í byggð verður saga, menning og varðveislugildi svæðisins fest í sessi.“

Til grundvallar tillögunni er Aðalskipulag Blönduósbæjar 2010 - 2030 og fyrri tillögur að aðalskipulagi, Húsakönnun á Blönduósi 2015, Fornleifaskráning Blönduósbæjar frá 2007, ítarleg samantekt um byggðina innan verndarsvæðisins í greinargerð tillögunnar og greining á núverandi svipmóti svæðisins, sem einnig birtist í greinargerð tillögunnar.

Tillögu, greinargerð og uppdrætti má einnig nálgast hér.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið