Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 05:48 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 05:48 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 05:48 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 05:48 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 05:48 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 05:48 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Til stendur að byggja nýjan 8,5 km langan stofnveg frá Hringvegi austan Blönduóss að Þverárfjallsvegi, skammt sunnan við brú á Laxá. Frá nýjum vegi verður byggður um 3,3 km langur vegur til norðurs, með nýrri brú yfir Laxá, og inn á núverandi Skagastrandarveg norðan við Höskuldsstaði í Skagabyggð. Heildarlengd vega og brúar er um 11,8 km. Á samgönguáætlun 2015-2019 var 50 milljón króna fjárveiting til framkvæmdanna árið 2017 og 150 milljón krónur á þessu ári. Á öðru tímabili langtímaáætlunar, eða 2019-2022, var 1.300 milljón króna fjárveiting.
Framkvæmdaraðili er Vegagerðin sem ber ábyrgð á mati á umhverfisáhrifum fyrirhugaðra framkvæmda. Á vef Vegagerðarinnar eru auglýst drög að tillögu að matsáætlun vegna þessara framkvæmda í Refasveit og um Laxá í sveitarfélögunum Blönduósbæ og Skagabyggð.
Markmið framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur á Norðvesturlandi, auka umferðaröryggi vegfarenda og íbúa og tryggja greiðari samgöngur á svæðinu. Að framkvæmdum loknum verður nýi 8,5 km langi stofnvegurinn hluti Þverárfjallsvegar sem fær nýtt vegnúmer, þ.e.a.s. Þverárfjallsvegur (73). Nýi 3,3 km langi vegurinn, með nýrri brú á Laxá, verður að framkvæmdum loknum hluti Skagastrandarvegar (74).
Drög að tillögu að matsáætlun eru kynnt á heimasíðu Vegagerðarinnar, http://www.vegagerdin.is/framkvaemdir/umhverfismat/matsaetlun/ samkvæmt reglugerð 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum. Almenningur getur gert athugasemdir við áætlunina og er athugasemdafrestur til 5. mars 2018. Athugasemdir skal senda með tölvupósti til soley.jonasdottir@vegagerdin.is eða til Vegagerðarinnar, Miðhúsavegi 1, 600 Akureyri.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |