Fréttir | 22. febrúar 2018 - kl. 21:33
Mótmæla harðlega lágu afurðaverði til bænda

Á aðalfundi Fjárræktarfélags Sveinsstaðahrepps, sem haldinn var á Blönduósi 19. febrúar síðastliðinn var samþykkt ályktun þar sem aðalfundurinn mótmælir harðlega því verði sem SAH-Afurðir greiddu fyrir sauðfjárafurðir síðastliðið haust. Aðalfundurinn skorar á fyrirtækið að greiða sambærilegt verð og aðrar afurðastöðvar gera.

Ályktunin sem samþykkt var á fundinum:

„Aðalfundur Fjárræktarfélags Sveinsstaðahrepps, haldinn á Blönduósi 19. febrúar 2018, mótmælir harðlega því verði sem SAH-afurðir greiddu fyrir sauðfjárafurðir síðastliðið haust, og aðalfundurinn skorar á fyrirtækið að greiða sambærilegt verð og aðrar afurðastöðvar gera.“

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga