Fréttir | 16. mars 2018 - kl. 09:00
Ársþing USAH á Húnavöllum á sunnudaginn

101. ársþing Ungmennasambands Austur-Húnvetninga verður haldið á Húnavöllum sunnudaginn 18. mars næstkomandi og hefst klukkan 10:00. Á dagskrá þingsins eru hefðbundin þingmál eins og framlagning skýrslu stjórnar og endurskoðaðra reikninga, skipun þingnefnda og kosningar. Þá verða Hvatningarverðlaun USAH afhent og kjöri Íþróttamanns USAH lýst.

Dagskrá þingsins í heild sinni er þessi:

1.            Þingsetning.
2.            Kosning fyrsta þingforseta sem tekur þegar til starfa.
3.            Kosning þriggja manna kjörbréfanefndar og tekur hún þegar til starfa.
4.            Kosning annars þingforseta og fyrsta og annars þingritara.
5.            Lögð fram skýrsla stjórnar og endurskoðaðir reikningar.
6.            Álit kjörbréfanefndar.
7.            Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga. Reikningar bornir upp til samþykktar.
8.            Ávörp gesta.
9.            Skipun þingnefnda, tillögur lagðar fyrir nefndir. Nefndir taka til starfa.
10.          Hvatningarverðlaun USAH afhent. Lýst kjöri Íþróttamanns USAH.
11.          Tillögur og nefndarálit tekin til afgreiðslu.
12.          Önnur mál.
13.          Kosningar  - álit kjörnefndar 

a) Kosið í stjórn USAH – formaður, varaformaður og meðstjórnandi til tveggja ára, ritari til eins árs og fimm í varastjórn til eins árs

b) Kosinn skoðunarmaður reikninga til tveggja ára og varamaður hans

c) Kosið í fastanefndir

d) Kosið í ritnefnd Húnavöku skv. 13. gr. laga USAH

14.          Fundargerð þingsins borinn upp til samþykktar.
15.          Þingslit

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga