Blönduós. Ljósm: Róbert Daníel Jónsson
Blönduós. Ljósm: Róbert Daníel Jónsson
Fréttir | 19. mars 2018 - kl. 15:21
Sumarstörf hjá Blönduósbæ

Blönduósbær auglýsir eftir flokksstjórum og sumarstarfsmönnum til starfa í Þjónustumiðstöð bæjarins og vinnuskólann frá 15. maí næstkomandi eða eftir nánara samkomulagi. Í auglýsingu á vef bæjarins segir að æskilegt sé að umsækjendur um störf flokksstjóra séu 20 ára eða eldri. Þá vantar starfsfólk til sumarstarfa, 17 ára og eldri. Umsóknareyðublöð má finna á vef Blönduósbæjar eða með því að smella hér og á bæjarskrifstofunni á Hnjúkabyggð 33. Umsóknarfrestur er til 10. apríl næstkomandi.

Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Blönduósbæjar í síma 455 4700. Umsóknir má senda á netfangið agust@blonduos.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga