Fréttir | 22. mars 2018 - kl. 09:30
Hollvinasamtök HSN á Blönduósi hafa ákveðið að hefja framkvæmdir við aðstandendaherbergi á annarri hæð Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Blönduósi. Aðstaðan verður tileinkuð minningu Sigursteins Guðmundssonar, fyrrverandi yfirlæknis á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi, sem var stofnandi og fyrsti formaður Hollvinasamtakanna en hann lést 20. aprÃl 2016. Samtökin auglýsa nú eftir sjálfboðaliðum; málurum, smiðum, rafvirkjum, pÃpurum og laghentum einstaklingum.
Allir sem vilja leggja samtökunum lið, svo verkefnið takist, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Sillu Hermanns à sÃma 452-4324 eða 680-6013. Þá minna samtökin á reikning sinn: 0307-26-270 kt: 490505-0400.