Hótel Laugarbakki. Ljósm: hotellaugarbakki.is
Hótel Laugarbakki. Ljósm: hotellaugarbakki.is
Tilkynningar | 13. apríl 2018 - kl. 21:49
Aðalfundur BHS 17. apríl á Hótel Laugarbakka
Frá BHS

Aðalfundur Búnaðarsambands Húnaþings og Stranda verður haldinn á Hótel Laugarbakka þriðjudaginn 17. apríl næstkomandi. Hefst fundurinn kl. 11:00.

Fundurinn er opinn öllum félagsmönnum þó svo aðeins kjörnir fulltrúar hafi atkvæðisrétt. Eru því allir sem áhuga hafa á málefnum BHS hvattir til að mæta.

Sérstaklega skal bent í því samhengi á mjög áhugaverð erindi gesta sem hefjast um kl. 13. Gestir fundarins verða annars vegar frá Farskóla Norðurlands vestra og Biopol og munu þeir kynna áhugavert námskeið sem haldið verður næsta vetur um „Matarsmiðju – beint frá býli“. Slíkt námskeið var haldið í Skagafirði núna í vetur og var mikil ánægja með því. Því vilja forsvarsmenn farskólans endilega halda annað næsta vetur og stefnt er að ná þátttakendum úr Húnaþingi og af Ströndum á það. Einnig verður Matthías Lýðsson frá Húsavík á Ströndum með erindi um reynslu þeirra hjóna af heimavinnslu matvæla.

Dagskrá aðalfundar 17. apríl 2017

1. Fundarsetning og skipan starfsmanna (fundarstjóri, fundarritari, kjörbréfanefnd)
2. Ávarp formanns BHS
3. Skýrsla framkvæmdastjóra um starfsemi BHS á árinu 2017
4. Reikningar BHS árið 2017
5. Umræður um skýrslu framkvæmdastjóra og reikninga

Matarhlé

6.  Niðurstaða kjörbréfanefndar
7.  Erindi gesta:

 - Matarsmiðja – Beint frá býli, Farskóli Norðurlands vestra ásamt Biopol
- Heimavinnsla matvæla, Matthías Lýðsson, Húsavík

8. Umræður um erindi gesta
9. Mál lögð fram til nefnda
10. Nefndarstörf og afgreiðsla mála

Kaffihlé

11. Kosningar skv. samþykktum BHS

•   Einn stjórnarmann úr V-Hún í stjórn BHS til þriggja ára og einn til vara
•   Tveir skoðunarmenn reikninga til eins árs og tveir til vara
•    Þrír búnaðarþingsfulltrúar (1 úr hverri sýslu) og þrír til vara

12. Önnur mál
13. Fundarslit

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga