Lóuþrælar
Lóuþrælar
Fréttir | 20. apríl 2018 - kl. 09:11
Lóuþrælar syngja vorið í borgina

Karlakórinn Lóuþrælar úr Húnaþingi vestra verður með tónleika í Seltjarnarneskirkju laugardaginn 21. apríl næstkomandi klukkan 16:00. Dagskráin er fjölbreytt að vanda. Söngstjóri er Ólafur Rúnarsson, undirleikur er í höndum Elinborgar Sigurgeirsdóttur og einsöngvarar eru Friðrik M. Sigurðsson, Guðmundur Þorbergsson og Skúli Einarsson. Aðgangseyrir er kr. 3.000, en frítt fyrir 14 ára og yngri.

Enginn kortaposi verður á staðnum. Brottfluttir Húnvetningar og allir aðrir eru hvattir til að mæta og eiga ánægjulega stund með kórfélögum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga