Frá Skagastrandarhöfn
Frá Skagastrandarhöfn
Fréttir | 20. apríl 2018 - kl. 15:12
Útboð vegna smábátahafnar á Skagaströnd

Skagastrandarhöfn óskar eftir tilboðum í gerð smábátahafnar, sem felst í dýpkun, byggingu skjólgarðs og uppsetningu landstöpla. Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. nóvember næstkomandi. Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni, Borgartúni 7 í Reykjavík frá og með þriðjudeginum 24. apríl og kosta kr. 5.000. Skila þarf tilboðum á sama stað fyrir klukkan 14 þriðjudaginn 8. maí 2018 og verða þau opnuð þar klukkan 14:15 þann dag.

Helstu verkþættir og magntölur eru:

Dýpkun í -2,5m, 9.500 rúmmetrar.
Flokkað grjót og sprengdur kjarni, 6.500 rúmmetrar.
Fyllingarefni 3.600 rúmmetrar.
​Uppsetning landstöpla, tvö stykki.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga