Frá Hvammstanga
Frá Hvammstanga
Fréttir | 26. apríl 2018 - kl. 14:19
Húsbyggingar hafnar af krafti á Hvammstanga

Ríkisútvarpið segir frá því að húsbyggingar væri hafnar af krafti á Hvammstanga eftir langt hlé en 18 lóðum hefur verið úthlutað þar á einu ári. Rætt er við Guðnýju Hrund Karlsdóttur sveitarstjóra og segir hún að allt bendi til þess að framhald verði á úthlutun lóða. Ekkert íbúðahús hefur verið byggt á Hvammstanga í tæpan áratug.

Í frétt Ríkisútvarpsins segir Guðný Hrund að flestir sem hafi fengið úthlutað lóð séu annaðhvort byrjaðir eða búnir að skila inn teikningum, eru bara í startholunum. Hún segir margar ástæður fyrir þessari þróun og nefnir almenna bjartsýni í samfélaginu og skorti á leiguhúsnæði. Þá sé mikill uppgangur í ferðaþjónustu og dæmi um að fyrirtæki byggi íbúðir fyrir starfsfólk.

„Það virðist vera að skapast einhverskonar jafnvægi á milli þess sem fólk færi fyrir húsnæði sem það er að selja og hvað kostar að byggja. Þannig að ég á ekki von á öðru heldur en að þetta haldi áfram, þetta sé byrjunin,“ segir Guðný Hrund.

Fram kemur í fréttinni að gatnagerðargjöld hafi verið felld niður á lóðum sem staðið höfðu tilbúnar frá árinu 2009 og að flestar þeirra séu seldar. Guðný Hrund segir að nú séu hafnar framkvæmdir við nýja götu og byrjað að byggja þar og um sé að ræða bæði fólk sem flutt hefur á staðinn á síðustu árum og fólk sem búið hefur inni á ættingjum. Þá hafi fólk líka flutt heim sem uppalið sé á staðnum.

Sjá má frétt Ríkisútvarpsins hér.

 

 

Skrifað af: Ragnar Z Guðjónsson

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga