Blönduós. Ljósm: Róbert Daníel Jónsson
Blönduós. Ljósm: Róbert Daníel Jónsson
Fréttir | 18. maí 2018 - kl. 10:15
Sumargaman í Blönduósbæ

Blönduósbær stendur fyrir sínu árlega Sumargaman í sumar frá 11. júní til 20. júlí. Sumargaman er fyrir börn búsett á Blönduósi, fædd 2009-2012. Einnig er opið fyrir börn fædd 2008 í kofabyggingar. Fyrstu tvær vikurnar hittast börnin út við Kvennaskólann meðan kofabyggingarnar eru. Svo mæta börnin hjá gamla vallarhúsinu á fótboltavellinum.

Dagskrá sumarsins má sjá hér.

Skila þarf inn umsóknareyðublaði á bæjarskrifstofu Blönduósbæjar að Hnjúkabyggð 33 fyrir 7. júní næstkomandi. Umsóknareyðublaðið má nálgast hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga