Fellsborg
Fellsborg
Fréttir | 22. maí 2018 - kl. 14:43
Framboðsfundur á Skagaströnd í kvöld

Haldinn verður sameiginlegur framboðsfundur framboða á Skagaströnd vegna komandi sveitarstjórnarkosninga og fer hann fram í Fellsborg klukkan 20:00 í kvöld. Fyrirkomulag fundarins verður með þeim hætti að þrír frambjóðendur frá hvoru framboði flytja framsöguerindi. Að þeim loknum verður tekið á móti fyrirspurnum úr sal. Einnig verður mögulegt að leggja fram skriflegar fyrirspurnir og skila í kassa sem staðsettur verður í anddyri Fellsborgar. Fundarstjóri verður Lárus Ægir Guðmundsson.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga