Tilkynningar | 23. maí 2018 - kl. 10:45
Aðalfundur Húnvetningafélagsins

Aðalfundur Húnvetningafélagsins í Reykjavík verður haldinn í Húnabúð, Skeifunni 11a í Reykjavík, þriðjudaginn 29. maí næstkomandi klukkan 20:00. Dagskrá fundarins er samkvæmt samþykktum félagsins. Formaður mun meðal annars gera grein fyrir störfum félagsins á liðnu ári og féhirðir leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins.

Dagskrá fundarins er þessi í heild sinni:
Formaður gerir grein fyrir störfum félagsins á liðnu ári.
Féhirðir leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins.
Skýrsla nefndar og starfsmanna félagsins.
Kosningar.
Önnur mál.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga