Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 00:46 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 00:46 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 00:46 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 00:46 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 00:46 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 00:46 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Helgi Freyr Margeirsson nýráðinn aðstoðarþjálfari Tindastóls í körfubolta ætlar að halda körfuboltanámskeið á Blönduósi laugardaginn 26. maí næstkomandi fyrir 12-16 ára krakka frá klukkan 11-14. Námskeiðið er sérstaklega miðað að krökkum sem búa á svæðinu frá Skagaströnd að Hvammstanga.
Ef námskeiðið gengur vel og vart verður við körfuboltaáhuga á svæðinu hefur Helgi Freyr hug á því að stofna Körfuboltaskóla Norðurlands vestra og ná þannig betur til krakkanna á þessu svæði á breiðara aldursbili með reglulegum æfingum. Þá er hugsunin sú að æfingarnar verði til skiptis í íþróttahúsum Hvammstanga, Blönduós og Skagaströnd til að dreifa ferðakostnaði iðkenda.
„Þessi hugmynd að reyna að auka áhugann á körfuboltanum á þessu svæði hefur lengi blundað í mér. Ég tel að þetta sé besta hópíþróttin fyrir lítil bæjarfélög þar sem fáa þarf til að geta sett saman lið, og góð lið eins og árangur kvennaflokka á Hvammstanga í gegnum tíðina hafa t.d. sannað. Uppgangur körfunnar á Sauðárkróki í gegnum meistaraflokksliðs Tindastóls síðastliðin ár hefur sýnt mér hvað það getur gefið samfélaginu ótrúlega mikið að hafa eitthvað jákvætt sameiningartákn til að fylkja sér á bak við, svo ekki sé talað um jákvæðar fyrirmyndir fyrir unga fólkið okkar,“ segir Helgi Freyr í tilkynningu.
Langtímamarkmiðið með Körfuboltaskóla Norðurlands vestra, ef hann kemst á laggirnar, er að tengja krakkana betur saman félagslega milli bæjarfélaga innan svæðisins og vekja hjá þeim áhuga á körfubolta sem getur mögulega skilað þeim í körfuboltaakademíuna í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og þannig halda krökkunum okkar á þessu svæði lengur, svæðinu öllu til hagsbóta.
„Ég lít svo á að lið meistaraflokks Tindastóls í körfu er lið Norðurlands vestra (eins og er) og í framtíðinni vil ég sjá krakka af þessu svæði koma í það lið í meira mæli,“ segir Helgi Freyr.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |