Fréttir | 24. maí 2018 - kl. 11:41
Breyting á Aðalskipulagi Blönduósbæjar 2010-2030

Blönduósbær auglýsir á vef sínum tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Blönduósbæjar 2010-2030. Breytingin tekur til greinargerðar, þéttbýlis- og sveitarfélagsuppdráttar og er sett fram tillaga um nýjan reit fyrir athafnasvæði, að Húnabær verði skilgreindur innan þéttbýlis á Blönduósi. Reiturinn tekur yfir svæði sem í dag er skilgreint sem íbúðarsvæði og að hluta sem óbyggt svæði. Báðar þessar skilgreiningar falla út innan þeirra marka sem athafnasvæðið tekur til.

Megin markmið með aðalskipulagsbreytingunni er að leiðrétta landnotkun og frekari kostur gefinn á starfsemi á athafnasvæði utan hinnar eiginlegu byggðar á litlum lóðum sem ekki hefur verið framboð á í sveitarfélaginu.

Breytingartillagan, aðalskipulagsuppdráttur ásamt greinargerð og umhverfisskýrslu, liggur frammi til kynningar frá 22. maí til 9. júlí næstkomandi á skrifstofu Blönduósbæjar að Hnjúkabyggð 33 á Blönduósi, á Héraðsbókasafninu á Blönduósi og hjá Skipulagsstofnun að Borgartúni 7b í Reykjavík. Einnig er breytingartillagan aðgengileg á vef Blönduósbæjar, http://www.blonduos.is.   

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Athugasemdir skulu þær vera skriflegar og berast eigi síðar en 9. júlí  næstkomandi til Blönduósbæjar, Hnjúkabyggð 33, 540 Blönduós. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.

Greinagerð Húnabær

Breyting á aðalskipulagi Blönduósbæjar 2010-2030

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga