Frá Skagaströnd
Frá Skagaströnd
Fréttir | 27. maí 2018 - kl. 00:31
Skagastrandarlistinn sigraði á Skagaströnd

Talningu atkvæða er lokið á Skagaströnd. Á kjörskrá voru 341, talin atkvæði voru 274 og var kjörsókn 80,4%. H-listi, Skagastrandarlistinn hlaut 60,9% atkvæða og þrjá menn kjörna. Ð-listi, Við öll hlaut 39,1% atkvæða og tvo menn kjörna.

Ný sveitarstjórn Skagastrandar er því þannig:

Af H-lista:
Halldór Gunnar Ólafsson
Péturína Laufey Jakobsdóttir
Róbert Kristjánsson

Af Ð-lista:
Guðmundur Egill Erlendsson
Kristín Björk Leifsdóttir

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga