Tilkynningar | 30. maí 2018 - kl. 23:30
Vorsýning Blönduskóla og skólaslit
Tilkynning frá Blönduskóla

Sýning á verkum nemenda, sem þeir hafa unnið í vetur, fer fram í Nýja skóla föstudaginn 1. júní í tengslum við útihátíð en opnar klukkutíma fyrr, frá kl. 10:00 – 12:45. Flest verkin hafa verið unni í smiðjum og valfögum í myndlist og textílmennt en einnig verða til sýnis einstaka verkefni sem nemendur hafa unnið í örðum fögum og á þemadögum. 

Skólaslit fara fram í bíósal Félagsheimilisins á Blönduósi föstudaginn 1. júní kl. 17:00. Allir hjartanlega velkomnir.

 

 

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga