Tilkynningar | 06. júní 2018 - kl. 09:11
Smábæjaleikar Arion banka og SAH Afurða 2018
Frá stjórn knattspyrnudeildar

Smábæjaleikar Arion banka og SAH Afurða fara fram 16. – 17. júní næstkomandi. Við eigum von á fjölmörgum gestum þessa helgi og er í mörg horn að líta við skipulagningu á svo stóru móti sem Smábæjaleikarnir eru.

Foreldrar barna í yngri flokkunum þurfa að sjálfsögðu að standa vaktina en við leitum einnig til annarra íbúa bæjarins um aðstoð við hin ýmsu störf sem inna þarf að hendi þess helgi.

Án ykkar hefur þetta ekki verið hægt hingað til og treystum við á stuðning ykkar áfram.

Vinsamlegast hafið samband við Kristínu Ingibjörgu á netfangið hvotmot@simnet.is eða í síma 691-8686 ef þið getið aðstoðað okkur.

Með fyrirfram þökkum

Stjórn knattspyrnudeildar

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga