Fréttir | 15. júní 2018 - kl. 15:41
Halldór Gunnar Ólafsson nýr oddviti sveitarstjórnar Skagastrandar

Fyrsti fundur nýkjörinnar sveitarstjórnar Skagastrandar fór fram í gær en á dagskrá fundarins var m.a. kosning oddvita, varaoddvita og ráðning sveitarstjóra. Halldór Gunnar Ólafsson var kjörinn oddviti og Péturína L. Jakobsdóttir varaoddviti. Lagt var til að starf sveitarstjóra yrði auglýst og ráðningastofa fengin til að annast auglýsingu og ráðgjöf við ráðningarferlið.

Núverandi sveitarstjóri, Magnús B. Jónsson, mun sinna starfinu til 31. júlí næstkomandi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga