Fréttir | 16. júní 2018 - kl. 10:04
Fyrsti leikur Íslands á HM

Það hefur væntanlega ekki farið framhjá nokkrum manni að Ísland spilar á HM í Rússlandi í dag. Mótherjarnir eru ekki af lakari gerðinni, Argentína með knattspyrnusnillinginn Messi í fararbroddi. Leikurinn hefst klukkan 13:00 að íslenskum tíma. Veitingastaðurinn B&S Restaurant við Norðurlandsveg 4 á Blönduósi sýnir beint frá leiknum í Eyvindarstofu. Þá verður leikurinn sýndur í Félagheimilinu á Hvammstanga við Klapparstíg 4 og í félagsheimilinu Fellsborg á Skagaströnd. Áfram Ísland!

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga