Frá Skagaströnd
Frá Skagaströnd
Fréttir | 23. júní 2018 - kl. 12:07
Staða sveitarstjóra Skagastrandar auglýst

Í atvinnuauglýsingum Fréttablaðsins í dag eru auglýst fimm störf sveitar- eða bæjarstjóra á landinu. Þar á meðal eru auglýst störf sveitarstjóra á Blönduósi og Skagaströnd. Umsóknarfrestur um bæði störfin er 2. júlí næstkomandi. Hæfniskröfur eru m.a. menntun sem nýtist í starfi, reynsla af rekstri og stjórnun, þekking á sveitarstjórnarmálum og opinberri stjórnsýslu, skipulagshæfileikar og hæfni í mannlegum samskiptum.

Fjallað var um starf sveitarstjóra hjá Blönduósbæ í fréttum Húnahornsins í gær.

Sveitarstjóri á Skagaströnd hefur umsjón með daglegum rekstri sveitarfélagsins og ber ábyrgð á framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar, hann hefur yfirumsjón með fjármálum, bókhaldi og áætlanagerð jafnframt því að hafa yfirumsjón með skipulagi og virkni stjórnsýslu sveitarfélagsins og starfsmannamálum. Sveitarstjóri starfar náið með sveitarstjórn, hann annast samskipti og upplýsingamiðlun við samstarfsaðila auk þess að annast undirbúning og upplýsingagjöf á fundum sveitarstjórnar. Starfið er afar fjölbreytt en sveitarstjóri er jafnframt hafnarstjóri Skagastrandarhafnar og er að auki framkvæmdastjóri Félags- og skólaþjónustu A-Hún.

Leitað er að sjálfstæðum einstaklingi með leiðtogahæfni og frumkvæði til framkvæmda auk hæfni í mannlegumsamskiptum. Hæfnikröfur eru: Menntun, sem nýtist í starfi. Reynsla af rekstri og stjórnun. Þekking og reynsla á sviði fjármála. Þekking á sveitarstjórnarmálum og opinberri stjórnsýslu er kostur. Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði. Gott almennt talnalæsi og meðferð talna. Kunnátta á notkun helstu tölvukerfa. Umsóknarfrestur er til og með2. júlí nk., gengið verður frá ráðningu fljótlega.

Guðný Harðardóttir veitir nánari upplýsingar um starfið í síma 588-3031 frá kl.13-15 alla virka daga meðan á umsóknarferlinu stendur. Vinsamlega sendið eigin starfsferilskrár og meðfylgjandi gögn til stra@stra.is eða þeir sem eiga umsóknir fyrirliggjandi hringi sendi rafpóst með tilkynningu um þátttöku.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga