Sigurvegarar mótsins Umf. Fram á Skagaströnd
Sigurvegarar mótsins Umf. Fram á Skagaströnd
Stigahæstu einstaklingar í hverjum flokki.
Stigahæstu einstaklingar í hverjum flokki.
Steinunn Hulda Magnúsdóttir stigahæsti einstaklingurinn í kvennaflokki. Með henni á pallinum er Rúnar sonur hennar
Steinunn Hulda Magnúsdóttir stigahæsti einstaklingurinn í kvennaflokki. Með henni á pallinum er Rúnar sonur hennar
Magnús Örn Valsson stigahæsti einstaklingurinn í karlaflokki.
Magnús Örn Valsson stigahæsti einstaklingurinn í karlaflokki.
Fréttir | 12. júlí 2018 - kl. 20:11
Héraðsmóti USAH í frjálsum íþróttum lauk í gær

Héraðsmót USAH í frjálsum íþróttum fór fram í gær og fyrradag á Blönduósvelli. Þátttakendur voru að venju frá Geislum, Umf. Bólhlíðinga, Umf. Fram og Umf. Hvöt. Keppendur voru 10 ára og eldri og var keppnin nokkuð spennandi en lítill munur var á efstu liðum eftir fyrri daginn. Þannig fór þó að Umf. Fram stóð uppi sem sigurvegari með 388,5 stig, í öðru sæti varð Umf. Hvöt með 368 stig, Geislar urðu í þriðja sæti með 289 stig og í því fjórða var Umf. Bólhlíðinga með 251 stig.

 

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga