Ljósm: ust.is
Ljósm: ust.is
Fréttir | 14. ágúst 2018 - kl. 07:19
Ströndin Víkur á Skagaströnd í vöktun

Starfsfólk Biopol hefur tekið að sér OSPAR vöktun á ströndinni Víkur á Skagaströnd fyrir Umhverfisstofnun. Ströndin bætist þar með við kerfisbundna vöktun stranda á Íslandi samkvæmt aðferðarfræði og leiðbeiningum frá OSPAR (samningur um verndum hafrýmis Norðaustur-Atlantshafsins). Starfsmaður Umhverfisstofnunar aðstoðaði starfsfólk Biopol við vöktunina í síðasta mánuði. Á ströndinni var mikið rusl sem kemur frá sjávarútvegi, eins og t.d. netakúlur, olíubrúsar og fiskikassar. Einnig fannst mikið af plastbrotum í ýmsum stærðum (sjá mynd). Ströndin verður vöktuð þrisvar sinnum á ári og verða niðurstöðurnar skráðar inn í gagnagrunn hjá OSPAR.

Víkur verður sjötta ströndin sem er vöktuð á Íslandi samkvæmt aðferðafræði OSPAR, en hinar eru: Surtsey, Bakkavík á Seltjarnanesi, Búðavík á Snæfellsnesi, Rauðisandur og Rekavík bak Höfn á Hornströndum (Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Umhverfisstofnunar: https://ust.is/atvinnulif/haf-og-vatn/voktun-stranda/).

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga