Sigfús Ingi. /skagafjordur.is
Sigfús Ingi. /skagafjordur.is
Fréttir | 14. ágúst 2018 - kl. 12:45
Nýr sveitarstjóri í Skagafirði

Skagfirðingar hafa ráðið sér nýjan sveitarstjóra. Á vef Sveitarfélagsins Skagafjarðar segir að í gær hafi byggðarráð samþykkt samhljóða að ráða Sigfús Inga Sigfússon í starf sveitarstjóra sveitarfélagsins kjörtímabilið 2018-2022. Sigfús Ingi er 42 ára gamall og hefur undanfarin ár starfað sem verkefnastjóri í atvinnu-, menningar- og kynningarmálum hjá Sveitarfélaginu Skagafirði. Hann hefur viðamikla reynslu úr störfum í opinberri stjórnsýslu bæði hjá ríki og sveitarfélagi og hefur einnig starfað hjá fyrirtækjum á einkamarkaði, að því er segir á vef Skagafjarðar.

Sigfús lauk BA-prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 2001 og MBA-gráðu frá University of Stirling í Skotlandi árið 2002, auk þess hefur hann stundað nám í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands. Sigfús Ingi er kvæntur Laufeyju Leifsdóttur, ritstjóra hjá Forlaginu, og eiga þau þrjú börn.

Alls sóttu 17 einstaklingar um starf sveitarstjóra en fjórir drógu umsókn sína til baka.

Áætlað er að Sigfús Ingi taki til starfa 22. ágúst næstkomandi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga