Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 21:41 0 0°C
Laxárdalsh. 21:41 0 0°C
Vatnsskarð 21:41 0 0°C
Þverárfjall 21:41 0 0°C
Kjalarnes 21:41 0 0°C
Hafnarfjall 21:41 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Fréttir | 16. ágúst 2018 - kl. 10:26
Íslandsmeistaramótið í hrútadómum

Mikið hefur verið um að vera á Sauðfjársetrinu á Ströndum í sumar, margvíslegar uppákomur og viðburðir. Framundan er svo stærsta samkoma ársins, Íslandsmeistaramótið í hrútadómum, sem verður haldið sunnudaginn 19. ágúst og hefst klukkan 14:00 í Sævangi við Steingrímsfjörð.

Ester Sigfúsdóttir framkvæmdarstjóri Sauðfjársetursins segir að undirbúningur fyrir helgina gangi mjög vel. „Það er alltaf góð þátttaka í hrútadómunum, en keppt er bæði í flokki þaulreyndra hrútadómara og líka í flokki óvanra og hræddra hrútaþuklara. Þetta er alltaf mjög skemmtilegt svo við erum bara glöð og spennt og vonumst eftir góðri mætingu" segir Ester.

Að venju verður kjötsúpa á boðstólum og kaffihlaðborð allan liðlangan daginn. Einnig er stórskemmtilegt happdrætti og eru líflömb í vinning. Kostar miðinn kr. 500 og geta þeir sem komast ekki á staðinn keypt sér miða í gegnum Facebook síðu Sauðfjársetursins eða hjá Ester í síma 693-3474.

Vinningar í happdrættinu eru hrútur frá Ernu Fossdal og Jóni Stefánssyni á Broddanesi, hrútur frá Barböru Guðbjartsdóttur og Viðari Guðmundssyni í Miðhúsum, hrútur frá Hafdísi Sturlaugsdóttur og Matthíasi Lýðssyni í Húsavík, gimbur frá Lilju Jóhannsdóttur og Guðbrandi Sverrissyni á Bassastöðum og gimbur frá Indriða Aðalsteinssyni á Skjaldfönn sem orti vísu með sínu líflambi:

Ef þig heillar flekkótt fé,
finnst sá litur bestur sé.
Eina gimbur á ég hér
sem eflaust myndi líka þér.

Á síðasta ári sigraði Guðbrandur Sverrisson á Bassastöðum í flokki vanra, í öðru sæti var Árný Huld Haraldsdóttir á Bakka í Reykhólahreppi og í þriðja sæti varð Ragnar Bragason á Heydalsá.

Sigurvegarinn í flokki vanra fær verðlaunagripinn Horft til himins til varðveislu í eitt ár og þess fyrir utan eru veglegir vinningar. Þetta árið eru það fyrirtækin Radisson BLU Saga Hotel, Láki Tours, Ístex, SAH afurði, Sætar syndir, Hólmadrangur, Farmers Market, Þaraböðin, Sætt og salt, Varma, Toro á Íslandi, Saltverk, Náttúrubarnaskólinn og Sauðfjársetrið sem styrkja keppnina um vinninga.

Á Sauðfjársetrinu eru nú uppi tvær sérsýningar, fyrir utan fastasýningu safnsins sem ber yfirskriftina Sveitafólk og sauðfé á Ströndum. Á listasviðinu er sýningin Álagablettir og í sérsýningarherbergi er sögusýningin Sumardvöl í sveit. Frítt er á allar sýningar Sauðfjársetursins á sunnudeginum. Í haust verður opnuð ný sýning á Sauðfjársetrinu og tengist sú sýning 100 ára fullveldisafmæli þjóðarinnar og hefur yfirskriftina Strandir 1918.

Ester hvetur að lokum alla til að leggja leið sína á Strandir á sunnudaginn og taka þátt í þessum skemmtilega degi.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið