Frá Hvammstanga
Frá Hvammstanga
Fréttir | 16. ágúst 2018 - kl. 13:38
20 ára afmæli Húnaþings vestra

Sveitarfélagið Húnaþing vestra fagnar 20 ára afmæli í ár og af því tilefni verður íbúum þess boðið upp á ýmsa sögu- og menningartengda viðburði dagana 24.-26. ágúst. Umsjónaraðili með dagskránni er Menningarfélag Húnaþings vestra og verður áhersla lögð á góðar samverustundir víðsvegar um sveitarfélagið. Harmonikkuball á Laugarbakka, nytjamarkaður, Markaðsdagur á Borðeyri, hestamót í Víðidal, tónleikar á Hvammstanga, brekkustemning í Kirkjuhvammi, varðeldur, söngur og kakó svo sitthvað sé nefnt.

Dagskráin er þessi:

Föstudagurinn 24. ágúst

  • Kl. 17:00 Sýningar opna víðsvegar um sveitarfélagið (ljósmyndasýningar, myndlistarsýningar oþh).
  • Kl. 21:00 Harmonikkuball í Félagsheimilinu Ásbyrgi á Laugarbakka

Laugardagurinn 25. ágúst

  • Kl. 11:00 Gærurnar opna nytjamarkaðinn og verður opið hjá þeim til kl. 15:00. Síðasta opnun sumarsins og miklir afslættir.
  • Kl. 14:00 Kaffiboð í Félagsheimilinu Hvammstanga. Ávarp sveitarstjóra, tónlistarflutningur, afmælisterta og drykkir.
  • Kl. 16:00 Kormákur/Hvöt - Geisli A. Fótboltaleikur í Kirkjuhvammi.
  • Kl. 16:00 Dælismótið 2018. Hestamennska. Sex lið keppa um titilinn.
  • Kl. 19:00 Heima. Tónleikar, ljóðalestur og fleira í heimahúsum á Hvammstanga og Laugarbakka.
  • Kl. 21:00 Brekkustemmning í Kirkjuhvammi. Varðeldur, söngur, kakó, sykurpúðar og huggulegheit.

Sunnudagurinn 26. ágúst

  • Kl. 09:00 Byggðasafnið opnar (rétt eins og alla aðra daga). Sýningin "Hvað á barnið að heita?", hljóðsýningin "Segðu mér...", kaffi og meðlæti.
  • Kl. 13:00 Markaðsdagur í Riishúsi á Borðeyri.
  • Kl. 14:00 Söguganga um Borðeyri.
  • Kl. 20:30 Bíósýning. Myndin Bændur og býli í V-Hún, sem tekin var upp á árunum 1953-1964, sýnd.
Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga