Fréttir | 21. ágúst 2018 - kl. 10:50
Smávirkjanir á Norðurlandi vestra
Lyftistöng fyrir bændur og atvinnulífið?

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa látið vinna frumúttekt á mögulegum smávirkjanakostum á Norðurlandi vestra og nær hún til yfir 80 staða í landshlutanum. Verkefnið var áhersluverkefni Sóknaráætlunar landshluta árið 2017 og verður fram haldið á þessu ári og því næsta. SSNV stendur fyrir kynningu á verkefninu í fundarsal Samstöðu að Þverbraut 1 á Blönduósi, fimmtudaginn 30. ágúst, klukkan 14-16. Allir eru velkomnir.

Dagskrá:

  1. Kynning á skýrslu um frumúttekt á smávirkjanakostum á Norðurlandi vestra – Bjarki Þórarinsson, Mannviti.
  2. Smávirkjanaverkefni Orkustofnunar – Erla Björk Þorgeirsdóttir, Orkustofnun.
  3. Reynslusaga – Vignir Sveinsson, Höfnum.
  4. Hleðsla í hlaði – Tjörvi Bjarnason, Bændasamtökum Íslands.
  5. Styrkir til rannsókna á mögulegum smávirkjunum – Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV.
  6. Fyrirspurnir og umræður.
Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga