Tilkynningar | 12. september 2018 - kl. 09:10
Aðalfundur Vina Kvennaskólans
Tilkynning frá stjórn

Vinir Kvennaskólans verða með aðalfund sinn í Kvennaskólanum á morgun, fimmtudaginn 13. september klukkan 20:00.

Dagskrá:

  • Venjuleg aðalfundarstörf.
  • Erindi "Dæturnar mínar skulu allar fá að læra að skrifa" Iðunn Vignisdóttir segir frá MA verkefni sínu sem fjallar um undirbúning þess að skrifa sögu Kvennaskólans á Blönduósi. 

Allir eru velkomnir á fundinn hvort sem þeir eru í félaginu eða ekki og kaffi og meðlæti verður ekki af verri endanum frekar en venjulega.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga